þriðjudagur, febrúar 21, 2006
Ferðasaga
Ég byrjaði að skrifa um daginn aftur, fyrsta lagi skrifaði ég heilan helling sem síðan næsti dagur skrifaðist yfir, algjörlega óþolandi! Var búin að setja mig í gírinn að rifja upp, skoða myndir miðað við hvern dag og svona......alveg brjál
Þannig að ég er eiginlega að spá í að skrifa ekki meiri ferðasögu, enda er ég löngu komin heim.
Þannig að ég er bara að spá í að hætta ferðasögunni og fara að einbeita mér af því sem ég er að gera þessa stundina.
2 Röfl ;)

fimmtudagur, desember 08, 2005
Dagur 5 (a.k.a. 12.nóvember)
Jæja þungur haus í dag.....vaknaði fyrir hádegi og dreif mig á fætur. Það þýðir ekkert að hanga inni í blíðunni, fór í eitthvað stúss með Einari og Cris og svo áttum við að mæta í grillpartý til Brúðhjónanna um 14 því var ekki mikill tími til að skoða og leika sér.
Í partýinu voru flestir úr brúðkaupinu, sumir skömmustulegir á svip eftir alla rauðvínsdrykkjuna frá kvöldinu áður og enn aðrir létu ekki sjá sig!
Við vorum þarna alveg fram á kvöld.....allt í lagi svona, en það hefði nú kannski verið betra ef maður hefði þekkt fólkið eitthvað. Við Biggi gáfumst svo upp á vera þarna og skildum Einar og Cris eftir. Kvöldið var rólegt þar sem að við þurftum að fara í flug daginn eftir til Jóhannesarborgar, því var það notað í að pakka öllu draslinu aftur niður og reyna að koma betri röð á dótið í bakpokanum! Sem gekk nú ekkert sérstaklega.
Leigubílstjórinn átti að pikka okkur upp um 05:00. Hvað er þetta með þessi morgunflug, þetta er að verða óþolandi. Maður þarf alltaf að vakna á næturnar til að koma sér í flug.
En við fljúgum með Suður Afrísku lágfargjaldaflugfélagi Kulula á morgun, það verður spennandi að sjá hvernig það lítur út.
.................to be continued
3 Röfl ;)

miðvikudagur, desember 07, 2005
Dagur 4 (a.k.a. 11.nóvember)
Sváfum einnig út þennan dag, fórum út að hlaupa, elduðum girnilegan morgun mat eins og vanalega og svo kíktum við aðeins niður á strönd. Rétt eftir hádegi þurftum við að fara að tía okkur í giftinguna, þar sem að ég og Biggi vorum boðflennurnar eða öllu heldur "The wedding crashers". Giftingin var haldin á víngarði Stellenbosch nálægt Cape Town. Þetta var svona hefðbundin bíómynda gifting, athöfnin fór fram úti og stóðu brúðhjónin undir svona blómakransi....ofsalega væmið og sætt :)
En eftir athöfn var farið inn og tekið til við að borða Suður Afrískann mat og drekka Suður Afrísk vín. Nokkrar ræður voru haldnar eins og vera ber og svo var slegið upp heljar einar partýi með Dj, þó ekki Dj Bigs.
Kvöldið var hresst og við skiluðum okkur seint í katta-kotið okkar.
Já ég var ekki búin að segja frá því að þegar við pöntuðum íbúðina þá var okkur ekkert sagt um það að það ættu 2 kettir heima þarna inni. Heldur bara þegar við mættum næsta dag þá vorum við spurð hvort við hefðum eitthvað á móti köttum?
Þeir ættu heima í íbúðinni en hún gæti alveg sett einhverja loku á hurðina en vá......kommon!
Fólk sem er með ofnæmi fyrir köttum getur ekki verið í íbúð sem kettir eru eða hafa verið í og það var ekkert minnst á þetta þegar við pöntuðum íbúðina. Mér finnst alveg lágmark að nefna svona við fólk áður en það mætir bara á svæðið. En hvað um það okkur var slétt sama um kéttina bara vildum ekki hafa þá í dótinu okkar þannig að þeir máttu dúsa frami í stofu í sófunum þar. Þegar heim var komið var bara farið upp í rúm að sofa.......krakkarnir voru orðnir þreyttir.
..................to be continued
0 Röfl ;)

þriðjudagur, desember 06, 2005
Dagur 3 (a.k.a. 10.nóvember)
Sváfum út í dag, var þokkalega þreytt eftir ferðina og nánast svefnlausa nótt daginn áður.
Hlupum út í búð til að geta búið okkur til girnilegan morgunmat, Ommilettur, ferskir ávextir, nýkreistur safi úr alls konar ávöxtum, brauð og allt sem okkur langaði í.
Eftir það var farið upp á Table Mountain......við styttum okkur leið og tókum kláfinn :)
Svakalegt útsýnið þegar hér er komið upp. Maður sér yfir alla Cape Town og þvílík sjón, hér prófaði ég í fyrsta skiptið linsuna sem ég keypti fyrir ferðalagið.
Linsan sem ég keypti er ekki af verri endanum Canon EF 70-200mm f2.8L IS USM. Kann ekkert á þetta en lúkkaði nokkuð pró með þessa HUGE linsu ;)
Eftir að ég var búin að mynda allt í bak og fyrir var farið niður með kláfnum og svo hófst barningurinn. Þá er það að koma sér í burtu......og ég alveg í essinu mínu að láta nú ekki plata mig, við löbbuðum á milli leigubílsstjóra og mini van bílstjóra til að finna ásættanlegt verð, þar sem að við sáum ekki Rikkí. Þegar við vorum nærri komið að samkomulagi kom þessi líka litli sæti Rikkí sem við hlupum að og tókum niður í waterfront-ið. Hinir kallarnir sem ég var búin að prútta við voru ekki alveg sáttir við framkomu væntanlegs viðskiptavinar og eltu okkur að Rikkíinum til að reyna að bjóða undir hans verði en við fórum glöð í Rikkí-inn Á OKKAR ÁBYRÐ eins og stendur á skilti inn í honum.
Við fórum og skoðuðum gamlabæinn við höfnina, keyptum smá af safarífötum og hatt til að fullkomna lúkkið :) Efir það var svo farið heim í sturtu með alla og út að borða enda komið kvöld. Við vorum búin að heyra af stað sem var með keppni í gangi......sem sagt rækjuáts keppni og ætluðu nú strákarnir aldeilis að slá metið. En þegar þar var komið var ekki laust borð þannig að við fórum á annan stað.......shit hvað það var gott að borða á honum. Hér held ég bara að við höfum borðað bestu máltíð ferðarinnar :)
Við tókum forskot á Mozambique og fengum okkur sjávarrétti og það ekki að verri endanum, það hét allt risa eitthvað enda höfðum við aldrei séð svona stórar risa rækjur, risa humar o.s.frv. í eftirrétt fengum við svo okkur Mississippi mud cake......usssss súkkulaðið í henni :Þ
Svo þegar við vorum búin að borða í marga klukkutíma þá fórum röltum við heim til að safna orku fyrir morgundaginn......
...........to be continued

Dagur 2 (a.k.a. 9. nóvember)
Klukkan er 03:30 og vekjaraklukkan hringir.....hressandi
Ég dríf mig á fætur fer í sturtu og geri mig tilbúna. Leigubíllinn nær í okkur eftir hálftíma þar sem að við eigum bókað flug til Amsterdam kl 06:45 og það tekur smá tíma að keyra út á flugvöll úr miðborginni. Leigubíllinn kemur aðeins of seint að ná í okkur og við höfum engann tíma til að fá okkur að borða áður en við förum í vélina.
Sem betur fer í þessu rúma 30 mínútna flugi var okkur gefin samlóka :) KLM á hrós skilið fyrir það. Svo lendum við og þurfum að drífa okkur í næstu vél sem fer með okkur alla leið til Cape Town, eina það sem við gerðum á flugvellinum var að kaupa okkur DEET svo við gætum smurt okkur öll með eytrinu. Ekki viljum við vera étin af flugum og öðrum kvikindum!
Jæja þá erum við komin í vélina og okkur bíður 12 tíma flug, ef það er ekki hresst þá veit ég ekki hvað. En KLM hafði ofan af okkur alltan tímann, ég horfði á 3 bíómyndir og spilaði tölvuleiki þess á milli, fékk 3 máltíðir að borða og helling af nammi og Coke Light, Appelsínusafa og Vatni!
Loksins lentum við.....klukkan er rétt fyrir miðnætti. Við náðum í töskurnar okkar og fórum í gegn þar sem að bílstjóri beið okkur með skiltinu Mr. Gudmundsson.
Hann keyrði okkur í íbúðina sem við leigðum hjá Swiss Cottage.....við fórum beinustu leið í háttinn frekar uppgefin.
............to be continued
1 Röfl ;)

Dagur 1 (a.k.a. 8. nóvember)
Ég tók mér frí í dag enda var ég að vinna langt fram eftir í gær og á eftir að pakka.
talandi um að pakka, hvernig skipuleggur maður hvað maður þarf að taka með sér???
Ég þarf að fara í giftingu í Cape Town, ég þarf að vera með eitthvað hlítt ef mér verður kalt, ég þarf að vera með eitthvað létt fyrir ströndina og bikiní, ég þarf að vera með safari föt, ég þarf að vera með föt sem duga fyrir veturinn í London þegar ég kem til baka og svo skó fyrri allan pakkann. Úfff þetta hljómar ekkert allt of vel.....þar sem að ég hef svo til enga reynslu í að fara í bakpokaferðalög hvað þá að pakka rétt í bakpokann!
Jæja set sitt af hvoru í pokann og loka, pokinn er þungur....nærri því leifileg vikt í flugi eða tæp 20kg.
Ég og Biggi leggjum leið okkar út á völl og komum að sjálfsögðu við í saga lounch þegar við erum búin að kaupa alla sólarvörnina :)
Við komum svo til Einars og Cris um 21 leitið, þar var hann ekki byrjaður að pakka frekar en venjulega. Við kjöftuðum heilan helling og borðuðum enda orðin frekar spennt fyrir ferðinni, við hölluðum okkur svo seint í beddan og sumir ekkert þessa nótt :)
........to be continued

Kuldi kuldi kuldaboli
Jæja þá er maður búinn að skila sér heim í kuldann....
Þannig að þá er bara að fara að blasta ferðasöguna hér, var að spá hvort ég geri það aftur á bak eða áfram!
hmmmm.....ætli það sé ekki bara best að byrja á byrjun og vinna sig svo til dagsins í dag.

laugardagur, október 01, 2005
Hvaða klukk vesen er þetta!
Gunni klukkaði mig víst......þannig að hér koma 5 atriði um mig!
1 Röfl ;)
Gunni klukkaði mig víst......þannig að hér koma 5 atriði um mig!
- Ég er TölvuNörd sem fílar að skrifa SQL kóða og finnst frábært að vinna hjá KB ;)
- Ég er með íþróttadellu og finnst nauðsynlegt að hreyfa mig eitthvað á hverjum degi. Ég hef alltaf verið í íþróttum enda er fátt skemmtilegra.
- Mér finnst gaman að elda og að borða góðan mat.
- Mér finnst gaman að ferðast og ég og Biggi erum dálítið yðinn við það. Mér finnst frábært að fara á öðruvísi staði.....enda eru plönin orðin nokkuð mörg. Afríka í ár, Suður Ameríka á næsta ári og hver veit hvað verður eftir það......
- Ég er oft misskilin.....held að fólk eigi erfitt með að átta sig á mér, en það þurfa nú barasta ekkert allir að ná mér þannig að mér er slétt sama.
Jæja svo á ég víst að klukka einhverja á móti og þeir heppnu eru..........Eivor, Andri og Snjólaug. Uss hvað þið eruð heppin.
1 Röfl ;)
Ferð Til Suður Afríku og Mozambique
Jæja þá erum við loksins búin að plana allt.......ferðaplanið okkar er eftirfarandi.

- Fljúgum til London 8.nóv og gistum hjá Einari og Cris yfir nóttina
- Fljúgum til Cape Town 9.nóv með millilendingu í Amsterdam ásamt Einari og Cris....sem verða að þessu sinni ferðafélagar okkar.
- Cape Town skoðað hátt og lágt í 2 daga :)
- Förum í Zulu giftingu hjá vinafólki Einars og Cris, staðsett einum klukkutíma frá Cape Town. Þetta gæti orðið fróðlegt!
- Fljúgum til Jóhannesarborgar, tökum þar bílaleigubíl og keyrum eins hratt og við getum í burtu frá borginni.....enda eru hætturnar "nokkuð margar" vægast sagt. Hér liggur leið okkar til Hazyview og staða þar í kring. Hér munum við skoða staði eins og God's window, Pilgrim's Rest og svo auðvitað munum við fara í Shangana Cultural Village. Þar sem að ég mun taka nokkra zulu dansa og borða kvöldmat :)
- Daginn eftir munum við keyra inn í Kruger National Park þar sem að við verðum næstu 3 daga að skoða dýr og fleiri dýr.
- 17.nóv munum við svo keyra til Nelspruit þar sem að 11 daga Mozambique tjaldferðalagið okkar byrjar. Við verðum bara 4 í þessu safaríi þannig að við þurfum ekki að hlusta á kenjar og rugl í öðru fólki :)
- Dagur 1 í Mozambique ~ Við munum keyra beint til Xai Xai setja upp tjöldin og elda saman kvöldmat.
- Dagar 2-5 í Mozambique ~ Við munum fara til Bazaruto Archipelago. Þetta er eyja rétt fyrir utan og hér eru rosalegar strendur og aftur strendur. Hér á að vera frábært að kafa og snorkla og það er einmitt það sem við munum gera þessa 4 daga :)
- Dagar 6-9 í Mozambique ~ Við verðum á Tofo Beach. Hér munum við snorkla með Whale sharks hugsa nú að ég þurfi að taka á honum stóra mínum til að koma mér út í sjóinn með þessi kvikindi fyrir neðan mig. Hér er mikið mannlíf og eitthvað þannig að þetta á víst að vera skemmtilegur staður til að vera á.
- Dagur 10 í Mozambique ~ förum til Maputo höfuðborgarinnar og skoðum og leikum okkur eftir 9 daga á ströndinni. Maputo á víst að vera mjög falleg borg.....við látum okkur sjá þegar við komum þangað.
- Dagur 11. í Mozambique ~ Við keyrum til Suður Afríku að Pretoria þar sem að við gistum eina nótt áður en að við förum til Cape Town. Þessi dagur verður sennilega ekkert annað en bílferð, örugglega ekkert skemmtilegur.
- 28.nóv fljúgum við til Cape Town og förum í einka villuna okkar með einka sundlaugina og svona, ef hún lúkkar ekki þá lúkkar bara ekkert!......usss restin af ferðinni verður notuð í að láta dekra sig......bara að slappa af og ligga flatmaga :)
- 1.des fer í að fljúga til london.....þessi ferð verður sennnilega ekkert spes!
- Næstu nætur verðum við hjá Einari og Cris og skoðum í London og svona
- 4. des fljúgum við svo heim til Íslands og þá er ferðin búin :(
En ég held bara að þetta eigi eftir að vera geðveik ferð........hlakka ekkert smá til enda ekki nema rúmur mánuður til stefnu :)
Við erum byrjuð á fullu í bólusetningum og öðrum skemmtilegheitum :)
0 Röfl ;)
Löngu kominn tími á annað update ~ September!
0 Röfl ;)
- Við Biggi fórum ásamt allri fjölskyldu minni til Noregs til Gumma og Ase að skoða nýja vetrarbústaðinn þeirra. Sjúklega flottur!
- Brjálað að gera í vinnunni, vinn bara endalaust.
- Hitti engann, sé engann, bara vinn og sef!
- Ég rétt meika að fara á Bootcamp æfingarnar, það er ekki töff.
- Nóvember ferðin okkar er tilbúin.....við erum búin að bóka allt sem bóka á.
- Ferðin lítur bara nokkuð vel út.
0 Röfl ;)
föstudagur, september 30, 2005
Löngu kominn tími á annað update ~ Ágúst!
0 Röfl ;)
- Labbaði Laugarveginn um helgina.....hressandi ferð en ég var orðin leið á labbinu síðasta spölinn.
- Ótrúlega skemmtileg ferð með hressu liði :)
- Á meðan ég var að labba spókaði Biggi sig bara í New York.....einhver "lækna ráðstefna".
- Búin að kaupa mér alvöru myndavéla græju!
- Canon EOS Digital Rebel XT er komin í safnið......nú er bara að byrja að mynda á fullu.
- Enginn er í vinnunni minni nema ég og einhverjir örfáir ráðgjafar.........ég er minn eiginn herra
- Allt á fullu að skipuleggja Suður Afríku ferðina.....lítur bara vel út, ef að nördavinnan mín virkar ekki þá hef ég þetta greinilega í mér, gæti tekið að mér að skipuleggja ferðir fyrir fólk!
- Ég er farin að hlakka verulega til að fara út........vííííí
0 Röfl ;)
Löngu kominn tími á annað update ~ Júlí!
0 Röfl ;)
- Vespan virkar alveg eins og hún á að gera.....
- Krúsa daginn út og daginn inn.
- Keypti mér galla og alles.....vil ekki detta og meiða mig
- Er að plana ferð með Andra, Óla Karate, Gulla og co, Gunnarie, Dodda mottu, Finni, Steina tönn, Jóhönnu og Vini Gunna að labba Laugarveginn um verslunarmannahelgina!
- stelpan bara labbar hægri vinstri upp á fjöll.....enda er hún að safna fjöllum.
- Annar er bara allt fínt að frétta....
0 Röfl ;)
sunnudagur, júlí 17, 2005
Vinna vinna vinna!
Já það er endalaust gaman að vinna.....bara ekkert flóknara en það. Ég var að vinna allan daginn í gær fór heim um tíuleytið! og ég var mætt í vinnu aftur klukkan 10 í morgun......frábært að vera að vinna þegar loks sést til sólar!
Og þar af leiðandi hef ég ekkert getað leikið mér neitt á englinum mínum :(
Er samt að vonast til að vera búin að vinna um kvöldmataleyti hér í dag, marr er alltaf svo bjartsýnn :)
Tók tímann í gærkvöldi þegar ég fór heim hvað ég er lengi og ég er heilar 19 mín á leiðinni....gleymdi samt að tékka hvað ég væri lengi niðureftir í morgun, var svo mikið að drífa mig eitthvað.
Jæja best að halda áfram að documentera......skemmtilegasta sem ég veit! aha!
RumpaStrumpa sem langar í frí(allavegana helgarfrí!)